Ljóst hvaða liðum íslensku liðin mæta í Sambandsdeildinni
Dregið hefur verið í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar og er því ljóst hvaða liðum Breiðablik og KR mæta.
Breiðablik mætir UE Santa Coloma frá Andorra á meðan KR mætir Pogoń Szczecin frá Póllandi.
Leikirnir fara fram 7. og 14. júlí, en dregið verður í aðra umferð forkeppninnar 15. júní. Breiðablik leikur fyrri leikinn á heimavelli á meðan KR fer til Póllands.