Dregið í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar
Mynd - Mummi Lú
Dregið hefur verið í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Takist Víking R. að sigra báða leiki sína í undankeppni forkeppninnar mætir liðið Malmö FF frá Svíþjóð. Víkingur R. mætir Levadia Tallin frá Eistlandi í undanúrslitum á meðan La Fiorita frá San Marínó og Inter Escaldes frá Andorra mæsta í hinum undanúrslitaleiknum. Báðir leikirnir fara fram 21. júní. Úrslitaleikurinn fer svo fram 24. júní og kemur þá í ljós hvaða lið mætir Malmö FF í næstu umferð.
Þess má geta að Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkings R. þjálfar Malmö FF í dag.