• mið. 04. maí 2022
  • Agamál

6 mánaða bann frá keppnum á vegum KSÍ

Á fundi aga- og úrskurðarnefndar KSÍ 2. maí var kveðinn upp úrskurður í máli ÍR gegn Víking Ólafsvík. Kærandi taldi að Víkingur Ó. hefði teflt fram ólöglegum leikmanni í viðureign liðanna í Lengjubikarnum þann 26. mars.

Óumdeilt var að mati nefndarinnar að sá leikmaður sem tók þátt í umræddum leik fyrir hönd Víkings Ó. var ekki hlutgengur til þátttöku í þeim leik. Þó ekki hafi verið getið um nafn leikmannsins í kæru eða greinargerð kærða þá liggur fyrir skýr viðurkenning af hálfu kærða að umræddur leikmaður hafi ekki verið kominn með leikheimild í umræddum leik og verður við það miðað. Var því lið Víkings Ó. ólöglega skipað til leiks og skal samkvæmt grein 10.1 sæta 60.000 kr. sekt og skal Víkingur Ó. talinn hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3.

Enn fremur var óumdeilt að mati nefndarinnar að umræddur leikmaður kærða var ekki skráður á leikskýrslu en lék hins vegar í keppnisbúningi nr. 11 en annað nafn var skráð á leikskýrslu með það númer þrátt fyrir að spila ekki í umræddum leik. Telst umrædd háttsemi fela í sér fölsun á leikskýrslu. Er því um sjálfstætt brot að ræða sem samkvæmt grein 36.3 í reglugerð um knattspyrnumót

Í niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar segir frá því að af svari Víkings Ó. verði ekki annað séð en að félagið gangist við báðum brotum. Í samræmi við grein 36.3 í reglugerð um knattspyrnumót var Víking Ó. gert að sæta sekt að fjárhæð kr. 100.000 vegna brotsins. Samkvæmt grein 36.4 í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót skal þjálfari eða forystumaður sem stuðlar að því að nafn eða kennitala er fölsuð á leikskýrslu sæta leikbanni eða banni frá stjórnunarstörfum í knattspyrnu í allt að eitt ár. Var forráðamanni Víkings Ó. í leiknum því gert að sæta banni frá stjórnunarstörfum í knattspyrnu í sex mánuði.

Skoða nánar