eFótbolti - Ísland komið í milliriðil í undankeppni FIFAe Nations Series
Íslenska landsliðið í eFótbolta er komið í milliriðil í undankeppni FIFAe Nations Series.
Liðið dróst þar í riðil með Ísrael, Póllandi, Skotland, Slóvakíu, Tékklandi, Kýpur og Slóveníu. Riðillinn verður leikinn dagana 19.-21. maí. Liðin keppa þar um sæti í lokakeppni mótsins sem fer fram í Danmörku 27.-30. júlí næstkomandi.
Allir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu og verður tilkynnt um það síðar.