Umsóknir um Fjölmiðlaskírteini 2022
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um fjölmiðlaskírteini KSÍ (F skírteini) fyrir knattspyrnumótin 2022. F-skírteini KSÍ eru gefin út til fulltrúa fjölmiðla að fenginni umsögn frá Samtökum íþróttafréttamanna.
Skráning fer fram í gegnum Accredito. Eftir innskráningu er sótt um með því að smella á "Accredit" við viðburðinn sem heitir "F skírteini 2022". Einnig er hægt að smella hér til að fara beinn inn í umsóknarferlið.
Skírteinin fyrir 2022 verða eingöngu rafræn og verða gefin út í gegnum smáforritið Stubb. Mjög mikilvægt er að GSM símanúmer sé rétt skráð þar sem skírteinið verður gefið út á símanúmer.
Í reglugerð KSÍ um aðgönguskírteini segir um notkun þeirra:
"Aðgönguskírteini gildir aðeins fyrir rétthafa þess. Aðeins skal gefa út eitt aðgönguskírteini á einstakling."
"Misnotkun skírteinis getur haft í för með sér innköllun á því. Óheimilt er að gefa út önnur aðgönguskírteini, sem gilda um allt land, en um er getið í þessari reglugerð."