U21 karla - jafntefli á Kýpur
U21 karla gerði 1-1 jafntefli gegn Kýpur í undankeppni EM 2023.
Leikurinn fór fram á Ethnikos Achnas á Kýpur. Kýpverjar komust yfir á 27. mínútu, en Kristian Nökkvi Hlynsson jafnaði með glæsilegu skoti í uppbótartíma síðari hálfleiks. Ísland er því áfram í fjórða sæti riðilsins.
Næstu leikir liðsins eru þrír heimaleikir, sem eru jafnframt síðustu leikir liðsins í riðlinum, og fara þeir allir fram á Víkingsvelli.
Leikirnir þrír eru.
Ísland - Liechtenstein - 3. júní
Ísland - Hvíta Rússland 8. júní
Ísland - Kýpur - 11. júní