Þorvaldur Árnason dæmir í undankeppni EM 2023 hjá U21 karla
Þorvaldur Árnason dæmir leik Möltu og Litháen í undankeppni EM 2023 hjá U21 karla.
Leikurinn fer fram í Ta' Qali á Möltu og honum til aðstoðar verða þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Andri Vigfússon. Fjórði dómari verður Jóhann Ingi Jónsson.