U21 karla - Ísland mætir Kýpur á þriðjudag
U21 karla mætir Kýpur á þriðjudag í undankeppni EM 2023.
Leikurinn fer fram á Ethnikos Achnas á Kýpur og hefst hann kl. 13:00 að íslenskum tíma. Ísland gerði jafntefli við Portúgal í síðustu viku, 1-1, á meðan Kýpur tapaði 0-1 á heimavelli gegn Hvíta Rússlandi. Ísland er í fjórða sæti riðilsins með átta stig eftir sex leiki, en Kýpur er í fimmta sæti með sjö stig eftir sex leiki.
Hægt verður að sjá beina útsendingu frá leiknum á Íslandi á Mycujoo vef KSÍ.