U19 karla - Ísland mætir Rúmeníu á þriðjudag
Mynd - Hulda Margrét Óladóttir
U19 ára landslið karla mætir Rúmeníu á þriðjudag í lokaleik sínum í milliriðlum undankeppni EM 2022.
Leikurinn fer fram á Gradski stadium Velika Gorica í Króatíu og hefst hann kl. 10:00 að íslenskum tíma. Ísland er í þriðja sæti riðilsins með eitt stig eftir tvo leiki og ljóst er að liðið á ekki möguleika á sæti í lokakeppni mótsins. Rúmenía er í efsta sæti riðilsins með sex stig.
Bein útsending verður frá leiknum á Mycujoo vef KSÍ.