• sun. 27. mar. 2022
  • Mótamál
  • Lengjubikarinn

Breiðablik og Stjarnan leika til úrslita í Lengjubikar kvenna

Breiðablik og Stjarnan mætast í úrslitaleik Lengjubikars kvenna.

Bæði lið unnu 3-0 sigra í undanúrslitum, Breiðablik gegn Aftureldingu og Stjarnan gegn Val. Þau munu því mætast í úrslitaleik sem fer fram föstudaginn 1. apríl.

Það hefur ekki tekist að klára Lengjubikar kvenna síðan árið 2019 vegna heimsfaraldurs COVID-19, en það ár vann Breiðablik 3-1 sigur á Val í úrslitaleik mótsins. Stjarnan varð síðast Deildabikarmeistari kvenna árið 2014 þegar liðið vann 3-0 sigur á Breiðablik. 

Breiðablik hefur unnið mótið sjö sinnum á meðan Stjarnan hefur hampað titlinum fjórum sinnum.