U17 kvenna - 1-0 sigur gegn Slóvakíu
U17 ára landslið kvenna vann 1-0 sigur gegn Slóvakíu í öðrum leik sínum í milliriðlum undankeppni EM 2022.
Ísabella Sara Tryggvadóttir skoraði eina mark leiksins þegar um fimmtán mínútur voru eftir af honum. Ísland er nú á toppi riðilsins með fjögur stig, en Finnland og Írland mætast síðar í dag. Það lið sem endar í efsta sæti riðilsins fer áfram í lokakeppnina.
Ísland mætir Írlandi í síðasta leik sínum í riðlinum á þriðjudag og hefst sá leikur kl. 11:00 að íslenskum tíma.