• þri. 22. mar. 2022
  • Mótamál
  • Lengjubikarinn

Breyting á úrslitaleik Víkings R. og FH í Lengjubikar karla

Vegna æfingaferða FH og Víkings R., hefur úrslitaleik Lengjubikars karla verið flýtt til 25. mars.

FH vann Stjörnuna 3-1 í undanúrslitum á meðan Víkingur R. vann 1-0 sigur gegn KR.

KR er ríkjandi Lengjubikarmeistari karla eftir að hafa unnið 2-1 sigur gegn ÍA árið 2019, en ekki hefur tekist að klára mótið síðustu tvö ár vegna stöðu COVID-19 í samfélaginu.

Lengjubikar karla
Úrslitaleikur
Víkingur R – FH
Föstudaginn 25. mars kl. 17.00
Víkingsvöllur