16 þátttökuleyfi útgefin á fyrri fundi leyfisráðs
Fyrri fundur leyfisráðs KSÍ í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2022 fór fram á miðvikudag. Teknar voru fyrir leyfisumsóknir félaga í Bestu deildum karla og kvenna en einnig voru teknar fyrir leyfisumsóknir í Lengjudeild karla.
Alls voru 16 umsóknir um þátttökuleyfi samþykktar á fundinum en afgreiðslu 18 leyfisumsókna var frestað um eina viku. Ráðið kemur aftur saman á þriðjudag í næstu viku.
Leyfisumsóknir sem samþykktar voru á fundi leyfisráðs KSÍ 15. mars:
Besta deild karla:
- Breiðablik
- Fram
- KA
- ÍA
- KR
- Stjarnan
- Valur
- Víkingur R.
Besta deild kvenna:
- Breiðablik
- Selfoss
- Valur
Lengjudeild karla:
- Afturelding
- Fylkir
- Grindavík
- Selfoss
- Þróttur Vogum