eFótbolti - Ísland í næstneðsta sæti undanriðils fyrir FIFAe Nations Series
Íslenska landsliðið í eFótbolta endaði í næstsíðasta sæti síns riðils í undankeppni FIFAe Nations Series.
Ísland var í riðli með Rúmeníu, Belgíu, Eistlandi, Finnlandi, Slóvakíu og Norður Írlandi, en Rúmeníu endaði á toppi riðilsins. Liðið lék 12 leiki, vann þrjá, gerði þrjú jafntefli og tapaði sex. Liðið skipuðu þeir Aron Þormar Lárusson, Bjarki Már Sigurðsson og Róbert Daði Sigurþórsson.