• mán. 14. mar. 2022
  • Mótamál
  • Lengjubikarinn

Breyting á leik Víkings R. og KR í undanúrslitum Lengjubikars karla

Vegna æfingaferðar KR hefur leik Víkings R. og KR í undanúrslitum Lengjubikars karla verið flýtt til 15. mars.

Á mánudag kemur í ljós hvaða lið mætast í hinum undanúrslitaleiknum. FH er þegar komið í undanúrslit, en mikil spenna er í riðli 4. Breiðablik er efst með 12 stig og hefur leikið alla sína leiki. Stjarnan er í öðru sæti með 10 stig og ÍA í því þriðja með níu stig. Stjarnan og ÍA mætast í Miðgarði mánudaginn 13. mars kl. 19:00 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Lengjubikarinn – Undanúrslit karla
Víkingur R – KR
Þriðjudaginn 15. mars kl. 19.15
Víkingsvöllur