• fim. 10. mar. 2022
  • Agamál

Lið Reynis H. ólöglega skipað gegn Ísbirninum í Lengjubikar karla

Lið Reynis H. var ólöglega skipað í leik gegn Ísbirninum í Lengjubikar karla þegar liðin mættust 5. mars síðastliðinn.

Björn Óli Snorrason, Maxymilian Bochra og Kristján Freyr Tómasson léku með Reyni S., en eru skráðir í Víking Ó.

Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:

10. SEKTIR
10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000

11. STJÓRN KEPPNINNAR
11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.

Neðangreindir leikmenn léku ólöglegir með Reynir H:

Björn Óli Snorrason
Maxymilian Bochra
Kristján Freyr Tómasson

Leikur: Ísbjörninn – Reynir H

Dagsetning: 5. mars 2022

Ástæða: Leikmenn skráðir í Víking Ó.

Í samræmi við ofangreinda reglugerð er Reynir H sektað um kr. 120.000.- Úrslit leiksins standa óbreytt í 5 – 1 Ísbirninum í vil.