Halldór Ragnar Emilsson skráður umboðsmaður hjá KSÍ
Halldór Ragnar Emilsson hefur verið skráður sem umboðsmaður hjá KSÍ og hefur því öðlast réttindi til að koma fram fyrir hönd leikmanna og/eða félaga við gerð leikmannasamninga eða gerð samninga um félagaskipti.
Hægt er að sjá lista yfir skráða umboðsmenn hjá KSÍ á vef sambandsins.