Ísland leikur í undankeppni FIFAe Nations Series í vikunni
Íslenska landsliðið í eFótbolta leikur í vikunni í undankeppni FIFAe Nations Series.
Leikirnir fara fram fimmtudaginn 10. mars og föstudaginn 11. mars og mætir Ísland Búlgaríu, Þýskalandi, Eistlandi, Slóvakíu og Norður Írlandi.
Landsliðið skipa þeir Aron Þormar Lárusson, Bjarki Már Sigurðsson og Róbert Daði Sigurþórsson.
Hægt verður að sjá alla leikina í beinni útsendingu á Twitch síðu KSÍ.
Fimmtudagurinn 10. mars
Ísland - Þýskaland kl. 16:55
Búlgaría - Ísland kl. 17:50
Föstudagurinn 11. mars
Ísland - Norður Írland kl. 16:00
Slóvakía - Ísland kl. 16:55
Ísland - Eistland kl. 17:50