Málþing KSÍ í beinni útsendingu á Youtube
Í dag, föstudaginn 25. febrúar, býður KSÍ til sérstaks málþings í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Á málþinginu verða þær tillögur sem liggja fyrir ársþingi KSÍ kynntar og ræddar og síðan munu Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ, Grétar Rafn Steinsson tæknilegur ráðgjafi KSÍ og Arnar Þór Viðarsson yfirmaður knattspyrnusviðs flytja erindi um mikilvægi fótboltans fyrir samfélagið, tengsl grasrótar og afreksstarfs, og framtíðina í knattspyrnustarfinu.
Málþingið verður í beinni útsendingu á Youtube rás KSÍ, sem má finna hér að neðan.
Dagskrá málþings
Föstudagur 25. febrúar
17:00-17:05
Setning málþings
Umsjón: Ingi Sigurðsson
17:05-18:00
Kynning á tillögum og umræður.
Tillögur sem liggja fyrir ársþingi KSÍ kynntar og ræddar
18:00-19:00
„Hvar vorum við, hvar erum við og hvert er ferðinni heitið?“
a)
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ.
Mikilvægi fótboltans og uppeldisleg gildi
b)
Grétar Rafn Steinsson,tæknilegur ráðgjafi KSÍ
Litið til framtíðar og tenging KSÍ við félögin
c)
Arnar Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnusviðs
Grasrót og afrek hönd í hönd