Dregið í forkeppni Mjólkurbikars karla og kvenna
Dregið hefur verið í forkeppni Mjólkurbikars karla og kvenna, en um er að ræða fyrstu tvær umferðinar.
Í fyrstu umferð í Mjólkurbikar karla mætast t.a.m. Þróttur V. og ÍR og Njarðvík og Fjölnir. Fyrsta umferð fer af stað föstudaginn 8. apríl.
Í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna mætast nágrannarnir í ÍH og KÁ ásamt því að bæði liðin sem féllu úr Pepsi Max deild kvenna í fyrra mæta liðum úr Lengjudeild kvenna. Fylkir mætir Haukum og Tindastóll mætir HK. Fyrsta umferð fer af stað föstudaginn 29. apríl.
Víkingur R., í meistaraflokki karla, og Breiðablik, í meistaraflokki kvenna, eru ríkjandi Mjólkurbikarmeistarar.