Tvö jafntefli og tap hjá Ísland á föstudag í FIFAe Nations Series
Ísland lék þrjá leiki á föstudag í undankeppni FIFAe Nations Series.
Liðið gerði jafntefli gegn Norður Írlandi og Eistlandi, en tapaði fyrir Slóvakíu. Á fimmtudag tapaði Ísland tveimur leikjum, en unnu einn. Þeir enda þennan hluta riðlakeppninnar í sjötta sæti síns riðils með 12 stig.
Landsliðið skipa þeir Aron Þormar Lárusson, Fylki, Tindur Örvar Örvarsson, Rafík, og Róbert Daði Sigurþórsson, Fylki.