Tilslakanir á samkomutakmörkunum
Tilkynnt hefur verið um tilslakanir á samkomutakmörkunum. Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð og eftirfarandi eru helstu atriði er snerta almenning og íþróttastarf í landinu (af vef ÍSÍ):
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 50 manns
- 1 metra regla mun taka gildi í stað 2 metra reglu
- Grímuskylda mun gilda áfram og tekur mið af nándarreglu
- Fjöldatakmarkanir í íþróttum verða áfram 50 manns
- Það verður heimilt að hafa allt að 500 manns í hverju hólfi í áhorfendasvæðum á íþróttaviðburðum
- Sundstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði fá að taka á móti allt að 75% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.
Skoða nánar á vef stjórnarráðsins