Þrír leikir í dag í undankeppni FIFAe Nations Series
Íslenska landsliðið í eFótbolta leikur þrjá leiki í dag í undankeppni FIFAe Nations Series.
Liðið lék þrjá leiki í gær, tapaði gegn Rúmeníu og Finnlandi en vann góðan sigur gegn Belgíu. Fyrir hönd Íslands leika þeir Aron Þormar Lárusson, Fylkir, Tindur Örvar Örvarsson, Rafík, og Róbert Daði Sigurþórsson, Fylki. Íslenska liðið er í næst neðsta sæti riðilsins eftir fyrri daginn með fimm stig. Frekar upplýsingar um keppnina má finna hér fyrir neðan.
Í dag leikur Ísland gegn Norður Írlandi, Slóvakíu og Eistlandi og verða allir leikirnir í beinni útsendingu á Twitch rás KSÍ.
Leikir dagsins
Ísland - Norður Írland kl. 16:00
Ísland - Slóvakía kl. 16:55
Ísland - Eistland kl. 17:50