Ísland leikur í undankeppni FIFAe Nations Series í vikunni
Íslenska landsliðið í eFótbolta leikur í vikunni í undankeppni FIFAe Nations Series.
Landsliðið skipa þeir Aron Þormar Lárusson, Fylki, Tindur Örvar Örvarsson, Rafík, og Róbert Daði Sigurþórsson, Fylki.
Ísland er í riðli tvö í neðri styrkleikaflokki og mætir þar Finnlandi, Belgíu, Rúmeníu, Eistlandi, Norður Írlandi og Slóvakíu. Leikið er á fimmtudag og föstudag.
Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á Twich rás KSÍ.
Fimmtudagurinn 27. janúar
Ísland - Rúmenía kl. 16:00
Ísland - Finnland kl. 16:55
Ísland - Belgíu kl. 18:45
Föstudagurinn 28. janúar
Ísland - Norður Írland kl. 16:00
Ísland - Slóvakía kl. 16:55
Ísland - Eistland kl. 17:50