Lokadagur til að skila inn tillögum fyrir ársþing KSÍ er 26. janúar
KSÍ minnir á að tillögur og málefni þau er sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þingi skulu berast stjórn KSÍ minnst mánuði fyrir þing, eða í síðasta lagi miðvikudaginn 26. janúar.
Kolbrún Arnardóttir lögfræðingur á skrifstofu KSÍ (kolbrun@ksi.is) tekur við tillögum og veitir aðstoð við uppsetningu þeirra sé þess óskað.