KSÍ C 1 þjálfaranámskeið, 5.-6. febrúar 2022
Stefnt er að því að halda KSÍ C 1 þjálfaranámskeið helgina 5.-6. febrúar nk. Að því gefnu að létt verði á samkomutakmörkunum fyrir þann tíma.
Þátttakendur fá aðgang að kennsluforritinu Canvas viku áður en námskeiðið hefst. Þá viku þurfa þátttakendur að nýta til undirbúnings, horfa á fyrirlestra, svara spurningum úr einstaka fyrirlestrum og undirbúa umræðuefni.
Ath. – skráningu lýkur því rúmri viku fyrir námskeið.
Dagskrá er að finna hér að neðan. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Námskeiðsgjald er 21.000 kr.
Markmið KSÍ C þjálfaranámskeiðsins er að gefa þjálfurum tæki og tól til að:
- Búa börnum og unglingum öruggt umhverfi til að stunda knattspyrnu
- Skipuleggja æfingar
- Efla færni sína í þjálfun/kennslufræði
- Bjóða iðkendum upp á æfingar við hæfi
Skráning:
5.-6. febrúar (skráningu lýkur 27. janúar): https://forms.gle/KSyNZcX9PqqU1kE99
Ath. af gefnu tilefni fylgja hér fyrir neðan reglur fræðslunefndar KSÍ um mætingu á þjálfaranámskeið:
• Fjarvist vegna KSÍ: (t.d. leikir í móti og landsliðsæfingar) að hámarki 4 kennslustundir. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.
• Fjarvist af öðrum ástæðum: að hámarki 2 kennslustundir. 3-4 kennslustundir þýðir verkefni. 5 kennslustundir þýðir nýtt námskeið.
Vinsamlegast athugið að mót á vegum KSÍ eru Lengjubikar, Bikarkeppni KSÍ og Íslandsmót. Önnur mót eru ekki á vegum KSÍ.