Hægt að kaupa hópamiða á leiki á EM 2022
Knattspyrnusamband Evrópu (UEFA) hefur tilkynnt að mögulegt verði fljótlega að kaupa hópamiða (Group Booking Window) á leiki í úrslitakeppni EM A landsliða kvenna, sem fram fer á Englandi á komandi sumri. Ekki hefur þó verið gefin út nákvæm dagsetning á því hvenær opnað verður fyrir þann möguleika, en öll miðasala á leikina fer fram í gegnum miðasöluvef UEFA og er fólk hvatt til að skrá sig þar til að fylgjast með og fá tilkynningar.
Eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um er Ísland á meðal þátttökuþjóða í úrslitakeppni EM - í fjórða skiptið í röð. Rétt er að geta þess að uppselt er á fyrstu tvo leiki íslenska liðsins, sem fram fara í Manchester, en til eru miðar á þriðja leikinn í riðlinum sem fram fer í Rotherham og því kjörið fyrir hópa að skella sér á þann leik.
Jafnframt hefur UEFA upplýst að almenn miðasala sem opna átti um miðjan febrúar, færist líklega yfir í mars.