U19 karla - Dregið í milliriðla undankeppni EM 2022
Dregið hefur verið í milliriðla undankeppni EM 2022 hjá U19 karla, en lokakeppnin fer fram í Slóvakíu 18. júní - 1. júlí.
Ísland er í riðli 4 með Króatíu, Georgíu og Rúmeníu. Milliriðlunum verður að vera lokið fyrir 29. mars næstkomandi.
Sigurvegarar hvers riðils komast áfram í lokakeppnina.