Árlegur formanna- og framkvæmdastjórafundur 27. nóvember
Árlegur formanna- og framkvæmdastjórafundur KSÍ verður haldinn laugardaginn 27. nóvember 2021 í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli. Fundurinn hefst kl. 11:00 og gert er ráð fyrir að hann standi til kl. 14:00.
Vegna samkomutakmarkana er nauðsynlegt að takmarka þann fjölda sem getur setið fundinn í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardalnum og var því ákveðið að takmarka fjöldann þar við einn fulltrúa frá hverju félagi, en félög geta engu að síður skráð fleiri fulltrúa á fundinn og fá þeir þá aðgang að honum í gegnum Teams fjarfundarbúnað. Skráningaform og aðrar upplýsingar hafa þegar verið sendar til aðildarfélaga.
Dagskrá fundarins er sambærileg við undanfarin ár:
- Setning fundar
- Mótamál, m.a. kynning á niðurstöðum starfshópa
- Félagaskipti milli landa og uppeldisbætur
- Reglugerðarbreytingar
- Önnur mál