Svíar hætta við Íslandsför U19 kvenna
Sænska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt KSÍ að hætt hafi verið við Íslandsför U19 landsliðs kvenna vegna stöðu Covid-faraldursins á Íslandi, en til stóð að U19 lið þjóðanna myndu mætast í tveimur leikjum síðar í mánuðinum. Vonast er til þess að hægt verði að taka upp þráðinn og spila þessa tvo leiki á nýju ári.
Íslenska U19 liðið mun engu að síður koma saman og æfa, auk þess að spila æfingaleik við Breiðablik laugardaginn 27. nóvember kl. 11:00 á Kópavogsvelli (ath breyttan tíma).