U21 karla - Byrjunarliðið gegn Grikklandi
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði liðsins frá leiknum gegn Liechtenstein.
Ísland og Grikkland mætast á Stadio Theodoros Kolokotronis í Tripoli, Grikklandi, í dag kl. 14:00. Grikkland er í öðru sæti riðilsins með 11 stig á meðan Ísland er í því fjórða með sjö stig. Grikkland hefur hins vegar leikið einum leik fleiri en Ísland og geta strákarnir því komið sér í góða stöðu í riðlinum með jákvæðum úrslitum í dag.
Bein útsending er frá leiknum á Youtube.
Byrjunarliðið
Jökull Andrésson (M)
Birkir Heimisson
Finnur Tómas Pálmason
Kolbeinn Þórðarson
Brynjólfur Andersen Willumsson (F)
Kristian Nökkvi Hlynsson
Bjarki Steinn Bjarkason
Hákon Arnar Haraldsson
Atli Barkarson
Viktor Örlygur Andrason
Valgeir Lunddal Friðriksson