Dregið í lokakeppni EM 2022 á fimmtudag
Dregið verður í lokakeppni EM A landsliða kvenna 2022 fimmtudaginn 28. október í Manchester á Englandi, en lokakeppnin fer fram þar í landi í júlí næsta sumar. Drátturinn verður í beinu streymi á vef UEFA og einnig á vef RÚV og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma.
Opnunarleikur keppninnar fer fram á Old Trafford 6. júlí og úrslitaleikurinn á Wembley 31. júlí. Leikið verður í átta borgum víðsvegar um England og má sjá hér að neðan hvar riðlarnir eru leiknir.
- A riðill - Southampton og Brighton (opnunarleikurinn á Old Trafford í Manchester)
- B riðill - Milton Keynes og London
- C riðill - Sheffield og Wigan & Leigh
- D riðill - Rotherham og Manchester
Ísland verður í fjórða styrkleikaflokki í drættinum, en árangur liða í síðustu þremur undankeppnum og lokakeppnum ræður röðun liða í styrkleikaflokka.
Styrkleikaflokkarnir
Flokkur eitt
- England (fer sjálfkrafa í A riðil)
- Holland
- Þýskaland
- Frakkland
Flokkur tvö
- Svíþjóð
- Spánn
- Noregur
- Ítalía
Flokkur þrjú
- Danmörk
- Belgía
- Sviss
- Austurríki
Flokkur fjögur
- Ísland
- Rússland
- Finnland
- Norður-Írland