U17 karla - Ísland hefur leik í fyrstu umferð undankeppni EM 2022 á föstudag
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U17 karla mætir Georgíu á föstudag í fyrsta leik liðsins í fyrstu umferð undankeppni EM 2022, en leikið er í Ungverjalandi.
Leikurinn hefst kl. 15:00 og verður hægt að fylgjast með honum í beinni textalýsingu á vef UEFA. Í riðlinum eru einnig Ungverjaland og Eistland.
Strákarnir mæta svo Eistlandi mánudaginn 25. október og Ungverjalandi á fimmtudaginn 28. október.