Tilslakanir á samkomutakmörkunum
Frá ÍSÍ:
Á miðnætti tóku gildi nýjar reglur um samkomutakmarkanir og munu þær gilda til og með 17. nóvember. Eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:
- Almennar fjöldatakmarkanir eru nú 2000 manns. Börn fædd 2006 og síðar telja ekki með í fjöldatölu.
- Heimilt er að hafa allt að 2000 manns í hverju rými á æfingum og í keppnum.
- Heimilt er að hafa allt að 2000 manns í hverju rými í áhorfendasvæðum.
- Heimilt er að hafa ótakmarkaðan fjölda áhorfenda ef allir gestir fæddir 2005 og fyrr framvísa neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi sem má ekki vera eldra en 48 klst.
- Skráningarskylda hefur fallið úr gildi og þurfa viðburðarhaldarar ekki lengur að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu.
- Almennt gildir 1 metra nálægðarregla nema á sitjandi viðburðum og á viðburðum þar sem hraðpróf eru notuð.
- Ekki er lengur grímuskylda en mælt er með því að fólk noti grímur þar sem ekki er hægt að viðhafa 1 metra fjarlægð frá ótengdum aðilum.
Áfram er mikilvægt að huga vel að sótthreinsun á sameiginlegum snertiflötum, loftræstingu og persónubundnum sóttvörnum. Einnig er vert að minna á leiðbeiningar frá embætti landlæknis og almannavörnum um smitrakningu í íþróttahreyfingunni sem má nálgast hér.
Frétt á vef heilbrigðisráðuneytis
Reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir frá 20. október til 17. nóvember