Afhending miða á leiki A kvenna í október fyrir handhafa A og DE skírteina
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Handhafar A og DE skírteina KSÍ geta nú sótt um miða á leiki A kvenna gegn Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM 2023.
Hægt verður að nálgast miða á leikina gegn Tékklandi og Kýpur rafrænt á vef tix.is til miðnættis degi fyrir leik. Finna má slóðir inn á tix.is hér að neðan.
Leikurinn gegn Tékklandi fer fram föstudaginn 22. október kl. 18:45 og leikurinn gegn Kýpur þriðjudaginn 26. október kl. 18:45. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli.