Norðurlöndin mótfallin því að halda HM karlalandsliða á tveggja ára fresti
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusambönd Norðurlandanna lýsa sig algjörlega mótfallin hugmyndum um að halda lokakeppni HM karlalandsliða á tveggja ára fresti.
Þetta var staðfest á fundi sambandanna sem haldinn var í Danmörku í vikunni. Ástæðurnar eru ýmsar og er þeim lýst í yfirlýsingunni undir hlekknum hér að neðan.
Yfirlýsing Knattspyrnusambanda Norðurlandanna – Nordic Position paper on the future of FIFA World Cup