A kvenna - Miðasala á leikina tvo í október hefst 18. október
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðasala á leiki A kvenna gegn Tékklandi og Kýpur hefst mánudaginn 18. október á tix.is.
Miðasala á leik Íslands og Tékklands hefst kl. 12:00 og miðasala á leik Íslands og Kýpur kl. 13:00.
Ísland mætir Tékklandi föstudaginn 22. október og Kýpur þriðjudaginn 26. október. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli og hefjast þeir kl. 18:45. Leikirnir eru liður í undankeppni HM 2023.
Frítt verður á leikinn fyrir 16 ára og yngri. Vegna COVID takmarkana þurfa allir vallargestir að hafa miða.
Þrjú verðsvæði eru á leiknum.
Svæði 1 - 4000 krónur.
Svæði 2 - 3000 krónur.
Svæði 3 - 2000 krónur.
Frítt fyrir 16 ára og yngri