A kvenna - Dregið í lokakeppni EM 2022 28. október
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið verður í lokakeppni EM 2022 hjá A kvenna fimmtudaginn 28. október.
Drátturinn fer fram í Manchester á Englandi, en lokakeppnin fer fram þar í landi næsta sumar. Opnunarleikur keppninnar fer fram á Old Trafford 6. júlí og úrslitaleikurinn á Wembley 31. júlí.
Ísland tryggði sér sæti í lokakeppninni eftir að hafa endað í 2. sæti síns riðils í undankeppninni. Leikið verður í átta borgum víðsvegar um England og má sjá hér neðan hvar riðlarnir eru leiknir.
A riðill - Southampton og Brighton (opnunarleikurinn á Old Trafford í Manchester)
B riðill - Milton Keynes og London
C riðill - Sheffield og Wigan & Leigh
D riðill - Rotherham og Manchester
Ísland verður í styrkleikaflokki fjögur í drættinum, en árangur liða í síðustu þremur undankeppnum og lokakeppnum ræður röðun liða í styrkleikaflokka.
Styrkleikaflokkarnir
Flokkur eitt
England - fara sjálfkrafa í A riðil
Holland
Þýskaland
Frakkland
Flokkur tvö
Svíþjóð
Spánn
Noregur
Ítalía
Flokkur þrjú
Danmörk
Belgía
Sviss
Austurríki
Flokkur fjögur
Ísland
Rússland
Finnland
Norður Írland