Helgi Mikael og Þórður Arnar dæmi í undankeppni EM 2022 hjá U19 karla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Mikael Jónasson og Þórður Arnar Árnason dæma í undankeppni EM 2022 hjá U19 karla í október.
Þeir dæma í riðli þrjú þar sem Austurríki, Ungverjaland, Hvíta Rússland og Eistland leika, en leikið er í Ungverjalandi dagana 6.-12. október.
Leikirnir sem Helgi og Þórður dæma:
6. október - Austurríki - Eistland. Helgi Mikael aðaldómari og Þórður Arnar aðstoðardómari.
9. október - Ungverjaland - Eistland. Helgi Mikael aðaldómari og Þórður Arnar aðstoðardómari.
12. október - Ungverjaland - Austurríki. Helgi Mikael fjórði dómari og Þórður Arnar aðstoðardómari.