U17 kvenna - 3-1 sigur gegn Norður Írlandi
U17 kvenna vann 3-1 sigur gegn Norður Írlandi í síðasta leik liðsins í fyrstu umferð undankeppni EM 2022.
Ísland endar því í öðru sæti riðilsins með sex stig. Það þýðir að liðið heldur sæti sínu í A deild fyrir aðra umferð undankeppninnar.
Emelía Óskarsdóttir, Margrét Lea Gísladóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir skoruðu mörk Íslands.
Byrjunarliðið
Margrét Rún Stefánsdóttir (M)
Eyrún Embla Hjartardóttir (F)
Telma Steindórsdóttir
Iðunn Rán Gunnarsdóttir
Steingerður Snorradóttir
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir
Margrét Brynja Kristinsdóttir
Margrét Lea Gísladóttir
Emelía Óskarsdóttir
Katla Tryggvadóttir
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir