Þátttökutilkynning í Íslandsmótið í Futsal 2022
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þátttökutilkynning fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu innanhúss 2022, Futsal, hefur verið send á félög.
Frestur til að tilkynna þátttöku er til sunnudagsins 10. október.
Mótafyrirkomulag
Mótið er leikið með sama fyrirkomulagi og síðustu ár, þ.e. að forkeppni meistaraflokka karla og kvenna verður leikin með hraðmótsfyrirkomulagi en úrslitakeppnin verður leikin með fullum leiktíma.
Tímabil keppninnar
Forkeppnin er leikin frá 13. nóvember til 19. desember.
Úrslitakeppni meistaraflokka verður leikin dagana 7. – 9. janúar.
Í 8-liða úrslitum verður leikið á heimavöllum félaga þar sem þess er kostur.
Dómgæsla
Dómarar eru skipaðir af KSÍ.
Nánari upplýsingar
Birkir Sveinsson (birkir@ksi.is), sími 510 2907
Þorvaldur Ingimundarson (thorvaldur@ksi.is), sími 510 2903.
Hafsteinn Steinsson (hafsteinn@ksi.is) sími 510 2927