• mán. 27. sep. 2021
  • Mótamál
  • Pepsi Max deildin

Leikmenn ársins í Pepsi Max deild kvenna

Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tilkynnt hefur verið hvaða leikmenn voru kosnir bestir og efnilegastir í Pepsi Max deild kvenna af leikmönnum deildarinnar.

Verðlaunaafhendingin fór fram í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport.

Leikmaður ársins

Agla María Albertsdóttir, Breiðablik, var valin leikmaður ársins. Hún lék alla 18 leiki liðsins í deildinni og allar þær mínútur sem leiknar voru. Í þessum 18 leikjum skoraði hún 12 mörk.

Efnilegasti leikmaður ársins

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, Þrótti R., var valin efnilegasti leikmaður deildarinnar. Ólöf Sigríður lék 15 leiki og skoraði í þeim 8 mörk, en Þróttur R. átti frábært tímabil og endaði í 3. sæti deildarinnar ásamt því að vera komið í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna.

Dómari ársins

Arnar Ingi Ingvarsson var valinn dómari ársins í Pepsi Max deild kvenna.