Leikmenn ársins í Pepsi Max deild karla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tilkynnt hefur verið hvaða leikmenn voru kosnir bestir og efnilegastir í Pepsi Max deild karla af leikmönnum deildarinnar.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Pepsi Max Stúkunni á Stöð 2 Sport.
Leikmaður ársins
Nikolaj Hansen var valinn leikmaður ársins í Pepsi Max deild karla, en hann var jafnframt langmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 16 mörk í 21 leik.
Efnilegasti leikmaður deildarinnar
Kristall Máni Ingason var valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Hann átti frábært tímabil með Íslandsmeisturum Víkings R., lék 21 leik og skoraði í þeim 3 mörk.
Dómari ársins
Ívar Orri Kristjánsson var valinn dómari ársins í Pepsi Max deild karla.