Afhending miða á leik A kvenna gegn Hollandi fyrir handhafa A og DE skírteina
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Handhafar A og DE skírteina KSÍ geta nú sótt um miða á landsleik A kvenna gegn Hollandi í undankeppni HM 2023.
Hægt verður að nálgast miða á leikinn gegn Hollandi rafrænt á vef tix.is til miðnættis mánudaginn 20. september. Finna má slóð inn á tix.is hér að neðan.
Leikurinn gegn Hollandi fer fram þriðjudaginn 21. september kl. 18:45 og er leikinn á Laugardalsvelli.