• fim. 16. sep. 2021
  • COVID-19
  • Mótamál

Reglugerð KSÍ um sóttvarnir vegna Covid (15. september)

Reglugerð KSÍ um sóttvarnir vegna Covid-19 hefur verið uppfærð.  Reglur þessar öðlast gildi 15. september 2021 og gilda til og með 6. október eða þar til breyting verður á reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 1030/2021 frá 14. september um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Sem fyrr er markmiðið að lágmarka áhættuna á að þátttakendur (iðkendur, starfsmenn félaga og allt annað aðstoðarfólk) smitist af Covid-19. Markmiðið er jafnframt og ekki síður að lágmarka smit til annarra, ef einstaklingur innan félags sýkist þrátt fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir. Mikilvægt er að öllum iðkendum og aðstoðarfólki sé gert það ljóst að ekki er hægt að útrýma sýkingarhættu að öllu leyti.

Skoða reglur KSÍ um sóttvarnir