Vilhjálmur Alvar dæmir í undankeppni EM 2023 hjá U21 karla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik Norður Írlands og Slóvakíu í undankeppni EM 2023 hjá U21 karla.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Þórður Arnar Árnason. Fjórði dómari er Helgi Mikael Jónasson.
Leikurinn fer fram þriðjudaginn 7. september í Lurgan á Norður Írlandi.