U21 karla - 2-1 sigur gegn Hvíta Rússlandi
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U21 karla vann góðan 2-1 sigur gegn Hvíta Rússlandi, en leikið var í Brest í Hvíta Rússlandi.
Hákon Arnar Haraldsson kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik og hann tvöfaldaði svo forystuna í upphafi síðari hálfleiks. Hvít Rússum tókst að minnka muninn í seinni hálfleik, en þar við sat og sigur hjá Íslandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2023.
Ísland mætir Grikklandi næst og fer sá leikur fram þriðjudaginn 7. september á Würth vellinum og hefst kl. 17:00. Hægt er að kaupa miða á leikinn á tix.is.
Byrjunarlið Íslands
Elías Rafn Ólafsson (M)
Ísak Óli Ólafsson
Finnur Tómas Pálmason
Valgeir Lunddal Friðriksson
Bjarki Steinn Bjarkason
Atli Barkarson
Kolbeinn Þórðarson
Kristian Nökkvi Hlynsson
Stefán Árni Geirsson
Sævar Atli Magnússon
Brynjólfur Andersen Willumsson (F)