Ívar Orri dæmir í undankeppni EM 2023 hjá U21 karla
Mynd - fotbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Orri Kristjánsson dæmir leik San Marínó og Þýskalands í undankeppni EM 2023 í U21 karla.
Honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Jóhann Gunnar Guðmundsson. Fjórði dómari verður Þorvaldur Árnason.
Leikurinn fer fram í Serravalle í San Marínó fimmtudaginn 2. september.