Stjórn KSÍ boðar til aukaþings
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 30. ágúst að boða með fjögurra vikna fyrirvara til aukaþings í samræmi við 13. grein laga KSÍ. Fundarboð með upplýsingum um þingdag, dagskrá og fyrirkomulag þingsins verða sendar aðildarfélögum á næstu dögum.
Stjórnin vill af þessu tilefni koma eftirfarandi á framfæri:
- Vinnu faghóps um endurskoðun viðbragða við kynferðisbrotum og ofbeldi innan hreyfingarinnar og hvernig staðið var og verður að stuðningi við þolendur verður áfram í forgangi.
- Stjórn, varafulltrúar og landshlutafulltrúar hafa ákveðið að segja af sér og munu skila umboði sínu eigi síðar en þegar til aukaþingsins kemur.
- Þessi niðurstaða er í samræmi við áskoranir Íslensks Toppfótbolta, óskir fulltrúa félaga sem sent hafa áskorun um aukaþing og þrýsting frá samfélaginu.
- Stjórnin hefur fundað með forseta ÍSÍ um framgang málsins og um það hvernig best verður haldið um starfsemi KSÍ fram að aukaþingi svo starfsemin haldist órofin.
- Fundað verður með fulltrúum UEFA og FIFA um stöðu málsins og fyrirhuguð stjórnarskipti þannig að ekki þurfi að koma til afskipta knattspyrnusambandanna að starfsemi sambandsins.
- Ásgeir Ásgeirsson hefur tilkynnt að hann segi sig hér með frá trúnaðarstörfum fyrir KSÍ.
Stjórnin færir starfsfólki KSÍ og sjálfboðaliðum í hreyfingunni bestu kveðjur og þakkir fyrir frábært samstarf og hvetur það til að vinna áfram af trúmennsku og dugnaði í þágu íslenskrar knattspyrnu.
30. ágúst 2021
Stjórn KSÍ.