Eins metra regla fellur niður og veitingasala heimiluð
Ný sóttvarnareglugerð tekur gildir 28. ágúst næstkomandi og gildir til 17. september. Meðal þess sem fram kemur á vef Stjórnarráðsins um reglugerðina er að eins metra regla fellur niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og að veitingasala verði heimiluð í hléum á íþróttaviðburðum.
Af vef Stjórnarráðsins:
Samkomutakmarkanir frá og með 28. ágúst til 17. september
- Áfram verður miðað við 200 manna fjöldatakmarkanir, 1 metra nálægðartakmörkun og almenna grímuskyldu.
- Íþróttir: Iðkendur mega vera 200 manns á íþróttaæfingum og -keppnum.
- Eins metra regla fellur niður meðal áhorfenda á íþróttaviðburðum og í sviðslistum.
- Veitingasala heimiluð í hléum á íþróttaviðburðum og sviðslistum.
- Skráningarskylda: Á öllum viðburðum verður skylt að skrá gesti í sæti, líkt og á veitingastöðum, í samræmi við ákvæði reglugerðar.